Prófloka / End of term Q-kvöld

Good evening queerope! 
Fyrsti viðburður nýju stjórnarinnar verður prófloka Q-kvöld!
Þar sem þetta verður í miðri Júró-viku munum við hafa smá Eurovision vibes. 😉

Föstudaginn 12. maí klukkan 19:00 í Samtökunum ‘78 (Suðurgata 3, 101 Reykjavík)
Hlökkum til að sjá ykkur!
Cha cha cha

🫶🫶✌️✌️

Good evening queerope!
The first event of the new board will be the End of term Q-evening!
Since it’s in the middle of Eurovision week, we’ll have some Eurovision vibes. 😉

Friday, May 12 at 7:00 p.m at Samtökin ’78 (Suðurgata 3, 101 Reykjavík)
We can’t wait to see you!
Cha cha cha

Smellið á myndina fyrir Facebook Event / Click the photo for the Facebook Event

20 ára afmælishátíð Q

20 ára afmælishátið félagsins fór fram í kjallaranum á Hard Rock Café Reykjavík föstudaginn 25. janúar sl.
Hátíðin fór mjög vel fram og höfðu gestir orð á því við stjórnarmeðlimi hve ánægð þau væru með kvöldið. Stjórn félagsins þakkar öllum þeim sem komu að hátíðinni á einn eða annan hátt, og öllum gestunum fyrir frábært kvöld.


Sérstakar þakkir fá styrktaraðilar hátíðarinnar ásamt starfsfólk Hard Rock Café fyrir frábærar veitingar og þjónustu við hýrasta viðburð í sögu staðarins.
Eftirfarandi fyrirtæki og stofnanir styrktu hátíðina og útgáfu afmælisritsins:
Landsbankinn, Hard Rock Café, Félagsstofnun Stúdenta, Háskólinn á Akureyri, Kiki Queer Bar, Pink Iceland, Háskólinn í Reykjavík, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands, Mekka Spirits og Mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Hrafn Sævarsson, ritari, ásamt Bergþóru Sveinsdóttur, formanni, opna kvöldið og kynna afmælisrit félagsins.

Fyrrum formenn félagsins fá blómvönd í þakklætisskyni fyrir framlag sitt til félagsins og hinsegin baráttu innan háskólanna.

Fyrsti formaður, og einn af stofendum félagsins, Alfreð Hauksson, hélt tölu og deildi kímnum sögum frá stofnun félagsins.

Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, aðstoðarrektor vísinda og prófessor í félagsfræði, hélt tölu fyrir hönd Háskóla Íslands í fjarveru Jóns Atla Benediktssonar rektors.

Ingileif Friðriksdóttir, söngkona og stofnandi Hinseginleikans, steig fyrst skemmtikrafta á svið og tók nokkur vel valin lög við góðar undirtektir.

Kimi Tayler, grínisti, steig næst á svið og skemmti lýðnum.

Næstur var það Turner Strait frá Dragsúgi.

Á eftir Turner mætti Starina á svið og tryllti lýðinn áður en hún fékk Turner upp með sér.

Páll Óskar mætti þá á svið með prompi og prakt eins og honum einum er lagið, með viðeigandi confetti sprengjum og glimmer dönsurum.

Leynigesturinn mætti á svæðið við mikinn fögnuð viðstaddra og flutti vel þekkta slagara sína. Hann ætlaði að vera farinn af landinu en lengdi ferðina bara til þess að missa ekki af þessum magnaða viðburði.

Seth Sharp hélt svo uppi stuðinu fram yfir miðnætti.

Myndlistakvöld // Art Making evening

Annað myndlistakvöld verður haldið á Suðurgötunni föstudaginn 13. apríl nk. kl. 20:30 – 23:30. Fólk er velkomið að koma með sitt eigið dót eða nota það sem við komum með. Vatnslitir, olíupastel og túspennar verða á staðnum, auk þess blöð. Allt er ókeypis. Félagskort verða til sölu.
Viðburðurinn á Facebook.

//

Another Art-Making Evening will be held at Suðurgata next Friday April 13 from 20:30 – 23:30 (8.30 pm – 11.30 pm). Bring your own supplies or use the ones provided to make some art in a relaxing and friendly atmosphere. Watercolours, oil pastels and markers will be provided, along with paper. Attendance is free.
Membership cards will be for sale.
The event on Facebook.

Q – Spilakvöld // Q’s Board game night

Q keypti nýlega í samstarfi við Samtökin ’78 allt Cards Against Humanity sem þig gæti dreymt um!
Við ætlum að fagna því og bjóða í spil föstudaginn 6. apríl kl. 20:30 að Suðurgötu 3.
BYOB gildir en það er aldrei að vita hvort við lumum á einhverjum veigum!
Þú getur fundið viðburðinn okkar á Facebook hér!

//

Q, in collaboration with Samtökin ’78, recently bought all the Cards Against Humanity imaginable!
To celebrate this joyous occasion we decided to invite you to play April 6 at 8.30 pm on Suðurgata 3.
BYOB applies but who knows, we might just have a little something for our guests!
You can find the event on Facebook here!

s-l1600

Viðtal við Ásu vegna kynfræðslunnar!

Hér er viðtal við Ásu Guðmundsdóttur gjaldkerann okkar um kynfræðsluna sem Hrafnhildur Sif Sævarsdóttir ritarinn okkar skipulagði og sá um! Takk innilega öll sem mættuð, þetta var snilldar viðburður! 

Sérstakar þakkir fær Sigurður Ýmir Sigurjónsson fyrrverandi formaðurinn okkar fyrir að hoppa inn á seinustu stundu!
  

Sigmann Þórðarson 18/03/2018

Kynfræðsla í skólum er óspennandi og sérlega takmörkuð þegar kemur að málefnum hinsegin fólks segir Ása Guðmunsdóttir, gjaldkeri Q – Félags hinsegin stúdenta. Félagið stóð fyrir hinsegin kynfræðslu á dögunum sem átti að fræða mann um það sem maður lærði ekki í skóla.

Hinsegin barsvar á kjallaranum // Queer PubQuiz at Stúdentakjallarinn

  Nú er kominn tími til að dusta af hinsegin þekkingunni og mæta á morgun á pubquiz í stúdentakjallaranum! Vinningar fyrir sigurvegarana í boði!  

//

  It’s time to brush up on your queer knowledge and show up for our queer pubquiz tomorrow at Stúdentakjallarinn! There will be a prize for the winner!  

Hinsegin kynfræðsla // Queer Sex Ed

🍆 KYNFRÆÐSLUKVÖLD Q – ALLT UM HINSEGIN KYNLÍF! 🍆

💕 Ein algengasta spurning sem við fáum í fræðslu er klárlega: hvernig stunda lesbíur kynlíf?? Við erum hér til að svara því og öllum öðrum spurningum sem brenna á þér varðandi hinsegin kynlíf! Tölum saman um margbreytileika kynlífs. Tölum um hvernig hinsegin fólk getur stundað heilsusamlegt kynlíf. Tölum um allskonar líkama, mörk, samskipti, leikföng, verjur, sleipiefni og bara allt milli himins og jarðar! 💕

Dagskrá kvöldsins er eftirfarandi:

🌸 20:00 „Mér var aldrei kennt“ – Hinsegin miðaða kynfræðslan sem þú fékkst ekki í skóla.
🌸20:40 Kynheilbrigði og PrEP talk – Hvernig hægt er að stunda allskonar kynlíf á öruggari máta.
🌸21:00 Pása
🌸21:10 Kynning á hjálpartækjum ástarlífsins
🌸21:40 #sjúkást– heilbrigð samskipti, samþykki, mörk og traust í hinsegin samböndum
🌸22:00 Dagskrá lokið, en opið fyrir spjall og drykki.

Hægt er að senda inn spurningar, uppástungur um umræðuefni eða aðrar hugmyndir nafnlaust í gegnum þennan link
https://goo.gl/forms/g8DDznGSbmGaxFco1

Umsjónarmenn kvöldsins verða Hrafnhildur Sif (læknanemi og fyrverandi kynfræðari hjá Ástráð) og Guðmunda Smári (Hinsegin kynfræðari ásamt því að sitja í stjórn s78 og Kynís).

🌈 Öll 18+ áhugasöm velkomin óháð kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum & kyntjáningu – aðgengi er mjög gott að húsinu! 🌈

Hér má finna viðburðinn á Facebook!

//

🍆Q’s Queer Sex Ed 🍆

💕 One of the most common questions that we get during lectures is: how do lesbian have sex?? Well, this friday you will get a chance to discuss both that and everything else that you’re wondering about queer sex! Let’s talk about the many wonders of sex! Let’s talk about how queer people can have safer sex. Let’s talk about body diversity, boundaries, communication, sex toys, protection, lube and everything else under the sun! 💕

The program:
🌸20:00 What we never learned in school – Queer oriented sex ed
🌸20:40 Sexual health og PrEP talk – Safer sex for all
🌸21:00 Break
🌸21:10 Sex Toys
🌸21:40 Sick love – communication, boundaries etc
🌸22:00 End of program, you can sit and chat, have some drinks 

Hosts of the night will be Hrafnhildur Sif (medical student and former sex educator) and Guðmunda Smári (queer sex educator and board member of s78).

🌈 Everybody 18+ welcome! The place is wheelchair-accessible 🌈

You can find the event here on Facebook!